Opið fyrir umsóknir um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán
Nú er opið fyrir umsóknir um að nýta séreignarsparnað skattfrjálst til að greiða inn á húsnæðislán. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Úrræðið gerir fólki kleift að nýta séreignarsparnað til að greiða inn á höfuðstól húsnæðisláns í allt að tíu ár. Á árinu 2026 er heimilt að ráðstafa allt að 500.000 krónum á mann með þessum hætti.
Til að nýta úrræðið þarf umsækjandi að eiga að minnsta kosti 30% eignarhlut í húsnæðinu, vera með þar skráð lögheimili og hafa lán sem er tryggt með veði í eigninni.
Umsóknir sem berast fyrir 1. desember gilda frá 1. janúar 2026
Þau sem vilja nýta séreignarsparnað vegna iðgjalda sem greidd hafa verið frá 1. janúar 2026 þurfa að sækja um fyrir 1. desember 2026. Umsóknir sem berast eftir þann tíma gilda frá og með umsóknarmánuði.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Skatturinn (Iceland Revenue and Customs).
Read the original at the source: https://island.is/s/skatturinn/frett/opid-fyrir-umsoknir-um-radstofun-sereignarsparnadar-inn-a-husnaedislan
Officially imported this from Skatturinn (Iceland Revenue and Customs)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Skatturinn (Iceland Revenue and Customs) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=skatturinn RSS
- Imported
- October 13, 2026 13:33
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/skatturinn/frett/opid-fyrir-umsoknir-um-radstofun-sereignarsparnada...