Styrkjum úthlutað til staðbundinna fjölmiðla

Imported from official source

Announcement

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum til einkarekinna, staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins. Markmið með styrkveitingunum er að efla starfsemi staðbundinna fjölmiðla á landsbyggðinni en þeir gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál og styðja með þeim hætti við lýðræðisþátttöku og menningarstarf.

Auglýst var eftir umsóknum þann 3. september sl. með umsóknarfresti til 1. október sl. Alls bárust 10 umsóknir fyrir tilgreindan umsóknarfrest, þar af 9 sem uppfylltu skilyrði reglna nr. 833/2026 um styrkveitingar til staðbundinna fjölmiðla.

Til úthlutunar voru 15 m. kr., 12,5 m. kr. frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og 2,5 m. kr. frá innviðaráðuneyti vegna aðgerðar C.08 í byggðaáætlun, Efling fjölmiðlunar í héraði. Fjárhæðinni er skipt jafnt á milli umsækjenda sem uppfylla skilyrði reglna nr. 833/2026.

Eftirfarandi fjölmiðlaveitur hljóta styrk, hver að upphæð 1.666.667 m. kr.

  • Akureyri.net, útgefandi Eigin herra ehf.
  • Austurglugginn og Austurfrett.is, útgefandi Útgáfufélag Austurlands ehf.
  • Bæjarblaðið Jökull, útgefandi Prentsmiðjan Steinprent ehf.
  • Dagskráin – Fréttablað Suðurlands og DFS.is, útgefandi Prentmet Oddi ehf.
  • Eyjafréttir og Eyjafrettir.is, útgefandi Eyjasýn ehf.
  • Kaffið.is, útgefandi Kaffið fjölmiðill ehf.
  • Skessuhorn og Skessuhorn.is, útgefandi Skessuhorn ehf.
  • Vikublaðið og Vikubladid.is, útgefandi Útgáfufélagið ehf.
  • This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-14-styrkjum-uthlutad-til-stadbundinna-fjolmidla

    Officially imported this from Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Menningar-nyskopunar-og-haskolaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 14, 2026 10:30
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2026-10-14-styrkjum-uthlutad-til-stadbundinna-fjolmidla

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.