Auglýst eftir styrkumsóknum í sjóðinn Þjóðhátíðargjöf Norðmanna

Imported from official source

Announcement

Stjórn Þjóðhátíðargjafar Norðmanna auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum fyrir árið 2026. Í tilefni 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar árið 1974 gaf norska stórþingið Íslendingum peningagjöf. Gjöf þessi myndar stofnfé sjóðsins Þjóðhátíðargjafar Norðmanna. Styrkir voru fyrst veittir úr sjóðnum árið 1976. Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 279/1975, ásamt síðari breytingum.

Tilgangur sjóðsins er að auðvelda Íslendingum að ferðast til Noregs. Í þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum, skipulögðum hópum og einstaklingum ferðastyrki til Noregs til að efla samskipti þjóðanna t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefnum, eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli. Segir enn fremur að lögð sé áhersla á að veita styrki sem renna til beins ferðakostnaðar.

Á þessu ári verður 3 m.kr. úthlutað úr sjóðnum. Þau sem undirbúa verkefni sem tengjast 200 ára ártíð Henrik Ibsen, árið 2028, eru sérstaklega hvött til að sækja um.

Umsóknir skulu berast rafrænt á umsóknareyðublaði sem nálgast má á hér.

Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2026.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-14-auglyst-eftir-styrkumsoknum-i-sjodinn-thjodhatidargjof-nordmanna

Officially imported this from Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Menningar-nyskopunar-og-haskolaraduneytid/rss RSS
Imported
October 14, 2026 10:30
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-14-auglyst-eftir-styrkumsoknum-i-sjodinn-thjodhatidargjof-nordmanna

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.