Evrópska persónuverndarráðið vekur athygli á áhættu vegna snjallgleraugna

Imported from official source

Announcement

Digital Rights Classified by Officially

Evrópska persónuverndarráðið (EDPB) hefur gefið út yfirlýsingu um þær áskoranir sem notkun snjallgleraugna hafa í för með sér fyrir persónuvernd.

Yfirlýsingunni er ætlað að veita notendum, framleiðendum og þjónustuveitendum leiðbeiningar og vekja athygli á áhættu sem fylgir notkun tækjanna.

Snjallgleraugu geta verið búin myndavélum og hljóðnemum sem gera kleift að taka upp myndir og hljóð án þess að þeir sem verða fyrir upptöku verði þess varir. Ráðið bendir á að sérstök áhætta geti skapast við notkun þeirra á viðkvæmum stöðum, svo sem á sjúkrahúsum, í skólum og á vinnustöðum, auk þess sem huga þurfi sérstaklega að vernd barna.

Í yfirlýsingunni er meðal annars fjallað um ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga og mikilvægi gagnsæis. Ráðið leggur áherslu á að einstaklingum þurfi að vera ljóst hvenær upptaka fer fram, til dæmis með skýrum ljós- eða hljóðmerkjum. Þá geti notendur snjallgleraugna sjálfir talist ábyrgðaraðilar að vinnslu persónuupplýsinga, meðal annars þegar myndefni er birt á opinberum samfélagsmiðlareikningum.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Persónuvernd (Icelandic DPA).

Read the original at the source: https://island.is/s/personuvernd/frett/evropska-personuverndarradid-vekur-athygli-a-ahaettu-vegna-snjallgleraugna

Officially imported this from Persónuvernd (Icelandic DPA)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Persónuvernd (Icelandic DPA) — imported from official source
Official source
https://island.is/rss.xml?organization=personuvernd RSS
Imported
October 14, 2026 11:32
Versions
1 recorded
Identity
https://island.is/s/personuvernd/frett/evropska-personuverndarradid-vekur-athygli-a-aha...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.