Frumvarp til nýrra loftslagslaga lagt fram á Alþingi

Imported from official source

Announcement

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur mælt fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um loftslagsmál á Alþingi. Frumvarpinu er ætlað að styrkja umgjörð loftslagsmála, tryggja eftirfylgni með skuldbindingum Íslands og hraða innleiðingu loftslagsaðgerða, en núgildandi lög eru frá árinu 2012. Frumvarpið kveður á um aukna áherslu á aðlögun að loftslagsbreytingum og viðnámsþol samfélagsins gagnvart áhrifum þeirra, auk þess sem vísindalegri ráðgjöf er gert hærra undir höfði en áður.

Í frumvarpinu er að finna nýtt ákvæði sem kveður á um skýr viðbrögð ef losun þróast með þeim hætti að Ísland sé ekki á réttri leið til að standa við loftslagsskuldbindingar sínar. Gefi losunarbókhald til kynna frávik frá skuldbindingum þarf meðal annars að meta fjárhagslegan kostnað, gera grein fyrir honum í ríkisreikningi og leggja fram tillögur að markvissari aðgerðum. Markmiðið er að tryggja aukið aðhald og skýrari ábyrgð ef stefnir í að markmiðum verði ekki náð.

Eitt meginmarkmiða frumvarpsins er að bæta stjórnsýslu loftslagsmála og tryggja að loftslagsaðgerðir komist hraðar til framkvæmda. Í þeim tilgangi felur frumvarpið í sér heimild til að starfrækja sérstök framkvæmdateymi sem eiga að hraða innleiðingu loftslagsaðgerða þvert á ráðuneyti og stofnanir. Þá er krafan um réttlát umskipti lögfest þannig að loftslagsaðgerðir taki mið af samfélagslegum áhrifum og stuðli ekki að auknum ójöfnuði.

Enn fremur er í frumvarpinu lagt til að Loftslagsráð verði vísinda- og sérfræðiráð með aukið sjálfstæði og sterkari faglegan grunn. Einnig verður starfsemi landsnefndar um loftslagsvísindi lögfest í fyrsta sinn. Markmiðið er að ákvarðanir stjórnvalda í loftslagsmálum byggi á bestu tiltæku vísindalegu þekkingu hverju sinni.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-14-frumvarp-til-nyrra-loftslagslaga-lagt-fram-a-althingi

Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 14, 2026 14:32
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-14-frumvarp-til-nyrra-loftslagslaga-lagt-fram-a-althingi

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.