Ný reglugerð um Loftslags- og orkusjóð og breyttar viðmiðunarfjárhæðir

Imported from official source

Announcement

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð sem felur í sér skýrari umgjörð um starfsemi Loftslags- og orkusjóðs og skilvirkara verklag við auglýsingar og úthlutun styrkja úr samkeppnishluta sjóðsins. Samhliða eru gerðar breytingar á viðmiðunarfjárhæðum beinna styrkja sem miða að því að fjármunir sjóðsins nýtist með hagkvæmari hætti en áður og beinist að þeim verkefnum sem skila mestum ávinningi.

Frá og með 1. nóvember verður hámarksverð styrkhæfra fólksbíla 8 milljónir króna í stað 10 milljóna og styrkfjárhæð vegna hvers bíls 400 þúsund krónur í stað 500 þúsund króna. Áfram verður veittur stuðningur við orkuskipti sendi-, vöru- og hópferðabíla en slíkir styrkir verða eingöngu veittir lögaðilum og einstaklingum í virkum atvinnurekstri.

Rafbílastyrkir hafa að mestu runnið til tekjuhærri hópa á undanförnum árum. Með lægra hámarksverði styrkhæfra bíla verður fjármunum beint til hópanna sem eru líklegri til þess að kaupa bíla á lægra verðbili og jafnframt stuðlað að fjölgun slíkra bíla á eftirmarkaði. Þessi breyting er í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar um réttlát umskipti.

Verðþróun rafbíla hefur verið hagstæð undanfarið ár, bæði vegna þróunar á heimsmarkaði og vegna þess að vörugjöld voru afnumin af nýjum rafbílum samhliða öðrum breytingum á gjaldtöku vegna ökutækja þann 1. janúar 2026. Rafbílar eru því orðnir samkeppnishæfari í innkaupum auk þess að vera ódýrari í rekstri en bensín- og dísilbílar.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-14-rafbilavaeding-studd-med-markvissari-haetti

Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 14, 2026 17:32
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-14-rafbilavaeding-studd-med-markvissari-haetti

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.