Öndunarfærasýkingar - Vika 41 árið 2026

Imported from official source

Announcement

Greiningum á öndunarfæraveirusýkingum fer áfram fjölgandi, eins og búast má við á þessum árstíma.

Greiningum á inflúensu hefur fjölgað undanfarið, en eru þó enn tiltölulega fáar. Fjöldi greininga á COVID-19 hefur sveiflast nokkuð undanfarið en nú virðist sem greiningum fari fjölgandi, þó greiningar séu enn fáar. Engin ný tilfelli RS-veirusýkingar hafa greinst undanfarnar vikur. Af öðrum öndunarfæraveirum greinast nú helst rhinoveira (kvefveira) og enteroveira og fer greiningum fjölgandi. Tölurnar byggja á sýnum sem send eru til rannsóknar og sem fyrr koma flest sýnin frá sjúkrahúsum. Fjöldi einstaklinga sem liggja á Landspítala með öndunarfæraveirusýkingu hefur aukist jafnt og þétt frá því í sumar.

Einstaklingar sem eru í áhættuhópum ættu að fylgjast vel með hvenær bólusetning gegn árlegri inflúensu hefst.

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 41 árið 2026 (5.–11. október 2026).

Mynd 1: Fjöldi greininga á öndunarfæraveirum og fjöldi einstaklinga inniliggjandi á Landspítala með öndunarfæraveirur. Sjá mælaborð.

Greiningum á inflúensu fer áfram fjölgandi en eru enn tiltölulega fáar. Í síðustu viku (viku 41) greindust 19 með inflúensu. Tæpur helmingur þeirra sem greindust (átta einstaklingar) voru 65 ára eða eldri. Átta voru 15-64 ára og þrír voru undir 5 ára. Meirihlutinn (16 einstaklingar) greindist með inflúensutegund A(pdm09) og þrír voru með tegund A(H3). Sjö einstaklingar lágu á Landspítala með inflúensu, heldur fleiri en undanfarnar vikur. Af þeim sem lágu inni voru sex á aldrinum 65 ára og eldri og einn var á aldrinum 15–64 ára.

Nefúðabóluefni gegn inflúensu er komið til landsins og bólusetningar barna frá tveggja ára aldri eru hafnar. Hefðbundið inflúensubóluefni fyrir yngri börn og fyrir fullorðna er seint á ferð vegna framleiðslutafa sem hafa áhrif á alla Evrópu en vonir standa til að bólusetningar hefjist á næstu vikum á heilsugæslum og annarstaðar þar sem bólusetningar forgangshópa fara fram.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Embætti landlæknis (Directorate of Health).

Read the original at the source: https://island.is/s/landlaeknir/frett/oendunarfaerasykingar-vika-41-arid-2026

Officially imported this from Embætti landlæknis (Directorate of Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Embætti landlæknis (Directorate of Health) — imported from official source
Official source
https://island.is/rss.xml?organization=landlaeknir RSS
Imported
October 15, 2026 14:31
Versions
1 recorded
Identity
https://island.is/s/landlaeknir/frett/oendunarfaerasykingar-vika-41-arid-2026

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.