Forvörn við RS-veiru hjá ungbörnum fest í sessi

Imported from official source

Announcement

Safety Classified by Officially

Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða fyrirbyggjandi ónæmisaðgerð fyrir börn yngri en 6 mánaða. Nærri 90% foreldra þáðu mótefni fyrir börn sín og nú er ljóst að vegna þess varð mikil fækkun á staðfestum sýkingum og sjúkrahúsinnlögnum hjá þessum aldurshópi. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja framhald þessa verkefnis með varanlegri fjármögnun. Þetta er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis um að bæta RS-forvörnum við almenna bólusetningaráætlun barna á Íslandi.

RS-veiran er algeng öndunarfæraveira sem gengur í stórum faröldrum yfir vetrartímann og leggst einkum þungt á börn á fyrsta aldursári. Faraldrar RS veiru ganga oft yfir samtímis árlegum inflúensufaraldri og fylgir því gjarna mikið álag á heilbrigðiskerfið. Sýkingar af völdum veirunnar er algengasta ástæða innlagna barna á sjúkrahús um alla Evrópu.

Í fyrra, þegar ráðist var í að bjóða forvörn gegn RS vírus fyrir ungbörn, var byggt á mati sóttvarnalæknis sem taldi að reynslan af því myndi leiða í ljós margþættan samfélagslegan ávinning, auk kostnaðarhagkvæmni. Valtýr Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalæknir Barnaspítala Hringsins segir að árangur þessara aðgerða síðastliðinn vetur hafi verið frábær. Mikil fækkun hafi orðið á staðfestum sýkingum og innlögnum hjá þessum aldurshópi barna. Í grein eftir Valtý bendir hann á að undanfarin ár hafi 150-200 börn á fyrsta aldursári leitað á Barnaspítalann og allt að 60 þurft að leggjast inn á spítala, þó mismunandi mörg milli ára. Síðastliðinn vetur hafi aðeins tvö börn yngri en 6 mánaða þurft á innlögn að halda og að þau hafi útskrifast sólarhring síðar.

Byrjað að bjóða forvörn gegn RS-veiru fyrir veturinn

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Health (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-15-forvorn-vid-rs-veiru-hja-ungbornum-fest-i-sessi

Officially imported this from Ministry of Health (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Health (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Heilbrigdisraduneytid/rss RSS
Imported
October 15, 2026 16:30
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-15-forvorn-vid-rs-veiru-hja-ungbornum-fest-i-sessi

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.