Forvörn við RS-veiru hjá ungbörnum fest í sessi
Imported from official source
Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða fyrirbyggjandi ónæmisaðgerð fyrir börn yngri en 6 mánaða. Nærri 90% foreldra þáðu mótefni fyrir börn sín og nú er ljóst að vegna þess varð mikil fækkun á staðfestum sýkingum og sjúkrahúsinnlögnum hjá þessum aldurshópi. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja framhald þessa verkefnis með varanlegri fjármögnun. Þetta er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis um að bæta RS-forvörnum við almenna bólusetningaráætlun barna á Íslandi.
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- October 15, 2026 16:30
- Change
- Initial
- Content hash
6841e33fe12c8f2b6a6fca0eb1cd7a2c- All versions
- Revision history