Norðurlönd, Eystrasaltsríkin og Úkraína efla samstarf um menningu og gervigreind

Imported from official source

Announcement

AI Classified by Officially

Menningarmálaráðherrar Norðurlanda, Eystrasaltsríkjanna og Úkraínu samþykktu sameiginlega yfirlýsingu um vernd menningararfs, sköpunarfrelsis og gervigreind á fundi í Tallinn dagana 6.–7. október.

Á fundinum var lögð áhersla á mikilvægi alþjóðlegs samstarfs til að vernda tungumál, menningu og réttindi skapandi fólks á tímum örra tæknibreytinga og aukinnar óvissu.

Ráðherrarnir ræddu meðal annars áhrif gervigreindar á menningargeirann, samkeppnishæfni skapandi greina og mikilvægi þess að tæknin styðji við fjölbreytni tungumála og menningar í stað þess að ógna henni. Þá var rætt um stafræna varðveislu menningararfs og mikilvægi þess að tryggja öryggi menningarverðmæta á tímum stríðs og krísa.

Í sameiginlegri yfirlýsingu fundarins er lögð áhersla á þrjú meginmarkmið:

  • Að efla samstarf um vernd menningar og menningararfs, meðal annars með stafrænni varðveislu.
  • Að standa vörð um sköpunarfrelsi, réttindi listafólks og höfundarrétt.
  • Að auka þekkingarmiðlun og samstarf um gervigreind, menningu og menningararf.
  • This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-15-nordurlond-eystrasaltsrikin-og-ukraina-efla-samstarf-um-menningu-og-gervigreind

    Officially imported this from Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Menningar-nyskopunar-og-haskolaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 15, 2026 21:32
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2026-10-15-nordurlond-eystrasaltsrikin-og-ukraina-efla-samstarf-um-menningu-og-gervigreind

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.