Hver mínúta skiptir máli: Skráum öll hjartastuðtæki í kortasjá

Imported from official source

Announcement

Safety Classified by Officially

Í tilefni Alþjóðlega endurlífgunardagsins í dag, 16. október, eru eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja hvattir til að skrá tækin sín í nýja kortasjá hjartastuðtækja. Markmiðið er að auðvelda almenningi og Neyðarlínunni að finna hjartastuðtæki þegar hjartastopp verður en hver mínúta getur skipt sköpum.

Heilbrigðisráðuneytið í samstarfi við fjölda aðila stendur fyrir skráningu hjartastuðtækja á landsvísu. Með verkefninu verður til heildstæð kortasjá yfir hjartastuðtæki á Íslandi þar sem upplýsingar um staðsetningu og aðgengi að tækjunum verða aðgengilegar þegar á reynir. Verkefnið hefur notið styrks af byggðaáætlun stjórnvalda.

Hjartastuðtæki er að finna víða um land, meðal annars á vinnustöðum, íþróttamannvirkjum, skólum og öðrum opinberum byggingum. Þegar hjartastopp verður skiptir máli að vita hvar næsta hjartastuðtæki er að finna. Með skráningu hjartastuðtækja í kortasjána verður auðveldara fyrir almenning og Neyðarlínuna að finna tækin fljótt og bregðast við þegar mest á reynir.

Skráning hjartastuðtækja er þegar hafin og unnið er að því að ná inn sem flestum skráningum áður en kortasjáin verður formlega opnuð.

Skráningarferlið er einfalt og tekur aðeins nokkrar mínútur. Eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja geta jafnframt valið hvort upplýsingar um staðsetningu tækisins verði sýnilegar almenningi eða eingöngu aðgengilegar Neyðarlínunni.

Eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja eru því hvattir til að taka þátt í verkefninu og skrá tæki í sinni umsjón.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Health (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-15-hver-minuta-skiptir-mali-skraum-oll-hjartastudtaeki-i-kortasja

Officially imported this from Ministry of Health (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Health (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Heilbrigdisraduneytid/rss RSS
Imported
October 16, 2026 08:30
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-15-hver-minuta-skiptir-mali-skraum-oll-hjartastudtaeki-i-kortasja

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.