Skýrsla starfshóps um fæðingar án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks

Imported from official source

Announcement

Safety Classified by Officially

Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um fæðingar án aðkomu heilbrigðisstarfsmanns og ýmis álitamál sem því tengjast, hefur skilað ráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum og tillögum.

Síðustu ár hefur fjölgað tilvikum þar sem heilbrigðisstarfsfólk er beðið um að votta barnsfæðingu sem þeir hafa ekki verið viðstaddir. Eins og fram kemur í skýrslu hópsins gera barnalög ekki ráð fyrir að börn geti fæðst án aðkomu heilbrigðisstarfsmanns og stjórnvöld hafa verið óviðbúin því hvernig tryggja skuli réttmæta skráningu í þjóðskrá. Vitað er um að minnsta kosti 23 tilvik þar sem konur kusu að fæða án heilbrigðisstarfsmanns árin 2022–2025.

Skortur á skýru verklagi getur torveldað skráningu barns og staðfestingu á því hver fæddi það. Hópurinn bendir jafnframt á að móðir og barn geti farið á mis við nauðsynlega heilbrigðisþjónustu, meðal annars skoðun og skimanir nýbura. Ástæður þess að konur standa utan þjónustunnar eru ólíkar; sumar kjósa það sjálfar, en aðrar kunna að búa við ofbeldi, mansal eða aðrar hindranir.

Starfshópurinn bendir á að á meðvitaðri sniðgöngu á heilbrigðisþjónustu í barneignarferli séu margar hliðar, burt séð frá ógn við öryggi móður og barns, þar sem lítil og jafnvel engin meðgönguvernd hefur farið fram og áhættuþættir sem skimað er eftir í meðgönguvernd því óþekktir. Aðrar hliðar á þessu máli eru réttur einstaklings til að afþakka heilbrigðisþjónustu, réttur nýfædds barns til heilbrigðisþjónustu, réttur barns til að vita uppruna sinn og til réttrar skráningar í opinberum gögnum.

Starfshópurinn leggur m.a. til samræmt verklag við vottun fæðinga og að foreldrar fái skýrar upplýsingar um mikilvægi þess að leita til heilbrigðisstarfsmanns innan 48 klukkustunda frá fæðingu.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Health (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-16-skyrsla-starfshops-um-faedingar-an-adkomu-heilbrigdisstarfsfolks

Officially imported this from Ministry of Health (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Health (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Heilbrigdisraduneytid/rss RSS
Imported
October 16, 2026 10:30
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-16-skyrsla-starfshops-um-faedingar-an-adkomu-heilbrigdisstarfsfolks

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.