Sviðsmyndaæfing stjórnvalda um mögulega veikingu veltihringrásar Atlantshafsins

Imported from official source

Announcement

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið stóð í gær fyrir sviðsmyndaæfingu um mögulega veikingu eða hrun veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) vegna loftslagsbreytinga. Þar var rýnt í þær samfélagslegu, efnahagslegu og öryggistengdu áskoranir sem slíkur atburður gæti haft fyrir íslenskt samfélag og hvernig kunni að vera hægt að viðbúast.

Þátttakendur komu víða úr stjórnkerfinu en markmiðið með æfingunni var að efla skilning stjórnvalda á loftslagsáhættu, vendipunktum og áhrifum á Ísland og að æfa viðbrögð við flóknum loftslagstengdum áskorunum sem snerta öryggi samfélagsins.

Sviðsmyndaæfingin er hluti af alþjóðlegu verkefni á vegum Strategic Climate Risks Initiative (SCRI) í samstarfi við UCL Climate Action Unit og Global Systems Institute við Exeter-háskóla. Æfingin á Íslandi er sú fjórða í röðinni en fyrri æfingar hafa bæði farið fram í Evrópu og Bandaríkjunum. Verkefnið er styrkt af Rockefeller-stofnuninni.

„Eitt af lykilhlutverkum stjórnvalda er að greina ógnir og búa samfélagið undir þær. Þannig nálgumst við eldgos og farsóttir og það sama á að gilda um loftslagsáhættu. Með því að rýna sviðsmyndir, kortleggja veikleika og æfa viðbrögð sjáum við betur hvar við stöndum og hvað er brýnast að styrkja. Eftir sem áður er hraðari samdráttur í losun á heimsvísu öruggasta leiðin til að draga úr þessari áhættu,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Samstillt viðbrögð þvert á stjórnkerfið

AMOC hefur verið á dagskrá íslenskra stjórnvalda frá því að tugir vísindamanna beindu opnu bréfi til Norrænu ráðherranefndarinnar á Arctic Circle í október 2024. Haustið 2025 vísaði ríkisstjórn Íslands málinu til þjóðaröryggisráðs og var það í fyrsta sinn sem tiltekin loftslagsáhætta var lögð formlega fyrir ráðið.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-15-svidsmyndaaefing-um-mogulega-veikingu-veltihringrasar-atlantshafsins

Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 16, 2026 13:30
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-15-svidsmyndaaefing-um-mogulega-veikingu-veltihringrasar-atlantshafsins

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.