Utanríkisráðherra endurnýjar samstarfssamning um Íslensku alþjóðabjörgunarsveitina

Imported from official source

Announcement

Disasters Classified by Officially

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur endurnýjað samstarfssamning utanríkisráðuneytisins við Slysavarnarfélagið Landsbjörgu um Íslensku alþjóðabjörgunarsveitina (ÍA), sem rann út árið 2021. Markmið samningsins er að tryggja viðbúnað og viðhalda getu björgunarsveitarinnar til að taka þátt í alþjóðlegum björgunaraðgerðum og mannúðarviðbrögðum í samræmi við alþjóðlega staðla.

Samningurinn gildir til ársloka 2028 og leggur grunn að markvissum undirbúningi sveitarinnar fyrir endurnýjaða alþjóðlega jafningjavottun árið 2029.

„Við Íslendingar berum mikla virðingu fyrir því óeigingjarna starfi sem björgunarfólkið okkar sinnir hér, á þessari afskekktu eldfjallaeyju í Norður-Atlantshafi. Hér getur veðurfarið verið harðneskjulegt og öflug náttúruöflin eru hluti af okkar daglega lífi. Þessi nána sambúð með náttúrunni hefur kennt okkur mikilvægi undirbúnings og viðbúnaðs, samvinnu og samstarfs,“ segir Þorgerður Katrín. „Þessi  íslenskaþekking og reynsla sem og fyrirhuguð vottun Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar á alþjóðavísu, mun gera okkur betur kleift að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi, leggja okkar lið, þegar hamfarir ríða yfir úti í hinum stóra heimi.“

Mikilvægt framlag til alþjóðlegra björgunaraðgerða

Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin starfar í umboði íslenska ríkisins og byggir á sérhæfðri þekkingu íslensks björgunarsveitarfólks og annarra viðbragðsaðila. Verkefni sveitarinnar geta meðal annars falist í leit og björgun fólks úr húsarústum, sjúkraaðstoð, fjarskiptum og rekstri neyðarbúða á hamfarasvæðum.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-16-utanrikisradherra-endurnyjar-samstarfssamning-um-islensku-althjodabjorgunarsveitina

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
October 16, 2026 14:01
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-16-utanrikisradherra-endurnyjar-samstarfssamning-um-islensku-althjodabjorgunars...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.