Fæðingarorlof: Foreldrar sem störfuðu í öðru EES-ríki kunna að eiga rétt á skaðabótum
Imported from official source
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Vinnumálastofnun vekja athygli á dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 50/2025 frá 23. september sl. þar sem íslenska ríkinu var gert að greiða stefnanda skaðabætur vegna rangrar innleiðingar á reglum EES-samningsins í tengslum við greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Dómurinn varðaði útreikning á meðaltali heildarlauna í þeim tilfellum þar sem foreldri starfaði í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Foreldrar sem uppfylla öll neðangreind skilyrði kunna að eiga rétt á skaðabótum: 1. Fengu greitt úr Fæðingarorlofssjóði á tímabilinu september 2022 til og með júní 2025. 2. Störfuðu skemur en 4 mánuði á innlendum vinnumarkaði á 12 mánaða viðmiðunartímabilinu sem notað er við útreikning á meðaltali heildarlauna. 3. Störfuðu í öðru EES-ríki á viðmiðunartímabilinu.
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- October 16, 2026 14:31
- Change
- Initial
- Content hash
7da27e1d824f6beb877beffc39f356b6- All versions
- Revision history