Drög að nýjum lögum um bókhald lögð fram í Samráðsgátt

Imported from official source

Announcement

Finance Classified by Officially

Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um bókhald hafa verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpinu er ætlað að leysa af hólmi bókhaldslög frá árinu 1994 og færa reglurnar til samræmis við nútímaumhverfi en í dag er bókhald að mestu fært og varðveitt með rafrænum hætti. Í frumvarpsdrögum er lagt til að skýrðar verði reglur um ábyrgð á bókhaldi, færslu og leiðréttingu bókhaldsfærslna, bókhaldsgögn, varðveislu og aðgengi að þeim og gerð ársreikninga þeirra aðila sem ekki falla undir önnur lög um ársreikninga.

Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að meginreglur um rafrænt bókhald verði festar í lög og reglur skýrðar um ábyrgð á bókhaldi, bókhaldsfærslur og leiðréttingar þeirra, varðveislu gagna og aðgang að þeim.

Frumvarpið er í samræmi við áherslur í stefnu stjórnvalda um hagstæð rekstrarskilyrði fyrirtækja, stafvæðingu og aukna skilvirkni í samskiptum fyrirtækja og hins opinbera.

Einnig er lagt er til að félög sem falla undir lög um ársreikninga verði almennt skyldug til að færa bókhald í rafrænu bókhaldskerfi en félög sem eru innan stærðarmarka örfélaga verði undanþegin þeirri skyldu. Með því er leitast við að hlífa smærri félögum við miklum kostnaði og fyrirhöfn. Á sama tíma nær skyldan til þeirra félaga sem eru komin yfir viðmiðunarmörk örfélaga og þar sem ætla má að umfang viðskipta og bókhalds sé almennt meira og ávinningur af rafrænu bókhaldskerfi, svo sem aukin sjálfvirkni, rekjanleiki og áreiðanleiki bókhaldsgagna, sé meiri.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Industries (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-19-drog-ad-nyjum-logum-um-bokhald-logd-fram-i-samradsgatt

Officially imported this from Ministry of Industries (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Industries (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Atvinnuvegaraduneytid/rss RSS
Imported
October 19, 2026 11:33
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-19-drog-ad-nyjum-logum-um-bokhald-logd-fram-i-samradsgatt

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.