Skipar svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði
Imported from official source
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði. Svæðisráðið starfar á grundvelli laga um skipulag haf- og strandsvæða nr. 88/2018 og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra. Guðjón Bragason er formaður ráðsins og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir varafulltrúi formanns. Í ráðinu eiga einnig sæti fulltrúar aðliggjandi sveitarfélaga, innviðaráðuneytisins, atvinnuvegaráðuneytisins, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- October 19, 2026 13:31
- Change
- Initial
- Content hash
84c428e04bee7c549ea778c5163d2d7e- All versions
- Revision history