Ársfundir Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins: Baráttan gegn fátækt líður fyrir þegar alþjóðlegum krísum fjölgar

Imported from official source

Announcement

Finance Classified by Officially

Áskoranir í alþjóðahagkerfinu, efnahagslegur stuðningur við Úkraínu og leiðir til að draga úr ójöfnuði voru meðal umræðuefna á ársfundum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem fara fram í Bangkok í Taílandi dagana 12.–18. október. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fór fyrir sendinefnd Íslands og tók þar þátt í fjölda funda og viðburða um efnahagsmál, þróunarsamvinnu og samstarf ríkja.

Á ársfundunum koma saman fjármála- og þróunarráðherrar, seðlabankastjórar og fulltrúar alþjóðastofnana og einkageirans til að ræða stöðu og horfur í alþjóðahagkerfinu og sameiginlegar áskoranir ríkja. Áhersla hefur  verið lögð á frumkvæði til að efla hagvöxt og atvinnusköpun, takast á við ójöfnuð og virkja einkafjárfestingar til þróunar.

„Alþjóðabankinn gegnir lykilhlutverki við að útrýma sárafátækt og stuðla að aukinni hagsæld og velmegun fyrir þá fátækustu. Því miður hefur hægt mjög á þeirri vegferð, ekki síst vegna fjölgunar átaka, efnahagslegs óstöðugleika og loftslagsbreytinga. Allt þetta eykur mjög á  vanda fátækustu ríkja heims. Við verðum að efla alþjóðlegt samstarf og tryggja að þróunarsamvinna nái til þeirra sem þurfa mest á henni að halda,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Stuðningur við Úkraínu og samstarf innan Alþjóðabankans

Daði Már tók þátt í hringborðsumræðum um stuðning við Úkraínu þar sem fjallað var um áframhaldandi fjárhagslegan stuðning við landið og áskoranir vegna endurreisnar og uppbyggingar. Alþjóðabankinn gegnir lykilhlutverki í samhæfingu alþjóðlegs efnahagsstuðnings við Úkraínu og uppbyggingu innviða og grunnþjónustu í landinu.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/345973f7-4e13-4982-b704-d9996149d06e

Officially imported this from Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Fjarmala-og-efnahagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 19, 2026 14:02
Versions
1 recorded
Identity
345973f7-4e13-4982-b704-d9996149d06e

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.