Yfirmaður Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) heimsótti Ísland

Imported from official source

Announcement

Olly Brown, tveggja stjörnu hershöfðingi og nýskipaður yfirmaður Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (e. Joint Expeditionary Force, JEF), kom nýverið í sína fyrstu opinberu heimsókn til Íslands.

Í heimsókninni átti Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, fund með Brown um vaxandi samtarf Íslands við JEF. Á fundunum var meðal annars fjallað um stöðu og þróun varnarsamstarfs innan JEF, auk öryggis- og varnarmála á Norður-Atlantshafssvæðinu og norðurslóðum.

Brown heimsótti jafnframt öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli þar sem honum voru kynnt varnartengd verkefni Íslands, s.s. loftrýmiseftirlit og gistiríkjastuðningur Íslands við bandalagsríki. Heimsókninni lauk með viðburði í breska sendiráðinu þar sem starfsemi viðbragðsveitarinnar og framlag Íslands var til umræðu.

JEF er samstarfsvettvangur ríkja í Norður-Evrópu sem hefur það að markmiði að efla hagnýta samvinnu á sviði öryggis- og varnarmála. Undanfarið hafa verkefni og aðgerðir á vegum JEF í auknum mæli beinst að vörnum gegn fjölþáttahernaði, þar á meðal að vernd mikilvægra innviða á og í hafi, svo sem neðansjávarinnviða, borpalla og vindorkuvera.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/yfirmadur-sameiginlegu-vidbragdssveitarinnar-jef-heimsotti-island

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
October 20, 2026 13:01
Versions
1 recorded
Identity
yfirmadur-sameiginlegu-vidbragdssveitarinnar-jef-heimsotti-island

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.