Skóflustunga tekin að nýju öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni

Imported from official source

Announcement

Safety Classified by Officially

Dómsmálaráðherra, bæjarstjórinn í Árborg og fangelsismálastjóri tóku í dag skóflustungu að nýju öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni.  Undirbúningur fyrir verkið hefur staðið í þrjú ár og því merkur áfangi.

Stóra-Hraun markar tímamót fyrir íslenskt fangelsiskerfi. Þetta er umfangsmesta framkvæmd sem ráðist hefur verið í á sviði fangelsismála hér á land. Stóra-Hraun er jafnframt fyrsta fangelsið sem er byggt og hannað sem öryggisfangelsi og litið var sérstaklega til reynslu annarra Norðurlanda hvað þetta varðar.

Í nýja fangelsinu verður lögð áhersla á öryggi, aðbúnað og endurhæfingu og að þetta þrennt fari saman. Í minnisblaði sem Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, lagði fyrir ríkisstjórn í síðustu viku kom fram að fangelsiskerfið þyrfti sterka innviði til að takast á við skipulögð afbrot og óæskileg tengsl milli fanga og síðast en ekki síst til að tryggja öryggi starfsfólks og fanga.

„Þetta er söguleg stund. Fangelsið að Stóra-Hrauni verður nútímalegt og uppfyllir allar ströngustu kröfur til að tryggja öryggi starfsfólks og fanga. Með þessari framkvæmd stígum við ákveðið inn í framtíðina, með betri aðstöðu fyrir starfsfólk og fanga og með auknum möguleikum til endurhæfingar,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.

Framkvæmdinni við Stóra-Hraun er skipt í tvo áfanga. Fyrri áfanginn er fullfjármagnaður og er áætlaður kostnaður um 17,8 milljarðar. Þar verða almenn fangarými fyrir 56 fanga, skólabygging, ein vinnustofa, vöruhús og aðalbygging. Þegar fangelsið er fullbyggt verða þar 128 afplánunarrými.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Justice (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/skoflustunga-tekin-ad-nyju-oryggisfangelsi-ad-stora-hrauni

Officially imported this from Ministry of Justice (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Justice (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Domsmalaraduneytid/rss RSS
Imported
October 20, 2026 17:00
Versions
1 recorded
Identity
skoflustunga-tekin-ad-nyju-oryggisfangelsi-ad-stora-hrauni

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.