Hjúkrunarheimilið Hlévangur opnað eftir endurbætur
Imported from official source
Hjúkrunarheimilið Hlévangur í Keflavík hefur verið tekið í notkun á ný eftir gagngerar endurbætur. Haldið var upp á opnun heimilisins í gær þar sem gestum og gangandi gafst kostur á að skoða húsnæðið að loknum vel heppnuðum framkvæmdum. Þar eru 24 hjúkrunarrými og fyrstu íbúarnir eru þegar fluttir inn. Húsið er á tveimur hæðum með skjólríkum inngarði. Öll rými eru einbýli með sérbaðherbergi og á báðum hæðum eru bjartar setustofur fyrir íbúana.
This version
- Version
- 1 of 2
- Recorded
- October 21, 2026 16:30
- Change
- Initial
- Content hash
c97780bd4fd407e6a01319df6170b081- All versions
- Revision history