Nýtt fyrirkomulag afsláttarkóða Loftbrúar: Föst krónutala í stað prósentu

Imported from official source

Announcement

Ákveðið hefur verið að taka upp nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar frá og með næstu áramótum. Afsláttarkóðar verður framvegis bundnir við fasta krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi (40%). Upphæðin verður 7.000 kr. fyrir hvern fluglegg eða 14.000 kr. fyrir ferð fram og til baka. Engar aðrar breytingar eru gerðar á Loftbrú. Íbúar landsbyggðarinnar með lögheimili innan sama skilgreinda svæðis eiga því áfram kost á lægri flugfargjöldum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Einstaklingar muna einnig áfram geta nýtt afsláttarkóða í alls sex flugleggjum.

Loftbrúarverkefnið var sett á fót árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjónustu. Viðtökur voru góðar og ferðum með Loftbrú hefur fjölgað ár frá ári. Á síðustu árum hefur heildarkostnaður vegna Loftbrúar farið nokkuð fram úr áætlunum. Af þessum sökum ákváðu stjórnvöld að gera breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar í því skyni að nýta fjárveitingar ríkisins sem best.

„Þjónusta Loftbrúar hefur verið þýðingarmikil fyrir íbúa á landsbyggðinni. Markmiðið með breytingum á fyrirkomulaginu er að verja jákvæð áhrif Loftbrúar og tryggja að íbúar landsbyggðarinnar njóti áfram góðs af þeim ávinningi sem Loftbrú skapaði. Við viljum á sama tíma búa svo um hnúta að kostnaður verði fyrirsjáanlegri og innan ramma fjárlaga,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Infrastructure (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/nytt-fyrirkomulag-afslattarkoda-loftbruar-fost-kronutala-i-stad-prosentu

Officially imported this from Ministry of Infrastructure (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Infrastructure (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Innvidaraduneytid/rss RSS
Imported
October 23, 2026 11:30
Versions
1 recorded
Identity
nytt-fyrirkomulag-afslattarkoda-loftbruar-fost-kronutala-i-stad-prosentu

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.