Einfaldara regluverk og markvissara byggingareftirlit – frumvarp birt í samráðsgátt

Imported from official source

Frumvarp um breytingar á lögum um mannvirki er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið er að einfalda regluverk og stjórnsýslu mannvirkjamála, skýra ábyrgð þeirra sem koma að byggingaframkvæmdum og gera byggingareftirlit markvissara til að fækka byggingargöllum og styrkja neytendavernd. Breytingarnar eru liður í aðgerðum stjórnvalda í húsnæðismálum og afar umfangsmikilli vinnu við að einfalda regluverk og greiða fyrir húsnæðisuppbyggingu án þess að slaka á kröfum um gæði og öryggi. „Saman miða öll þessi verkefni að því að einfalda og stytta ferla, allt frá skipulagi til byggingar og eftirlits með mannvirkjum. Þetta er kerfisbreyting sem beðið hefur verið eftir svo árum skiptir. Við erum ekki að minnka kröfurnar eða draga úr gæðum mannvirkja heldur taka til í regluverki sem hefur verið of flókið og þungt í vöfum og láta það virka,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

This version

Version
1 of 1
Recorded
October 23, 2026 13:34
Change
Initial
Content hash
d7ca611c8a7711ceb9f57662dc05dfcb
All versions
Revision history

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.