Tímabundið drónabann við Vesturhóp í Grindavík 27. október 2026
Safety Classified by Officially
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að setja á tímabundið bann við flugi dróna vegna aðgerða lögreglu við Vesturhóp 29 í Grindavík.
Drónabannið gildir þriðjudaginn 27. október 2026, frá kl. 08:00 til kl. 15:00.
Á meðan bannið er í gildi er öllum óheimilt að fljúga drónum eða öðrum fjarstýrðum loftförum innan 50 metra radíuss frá Vesturhópi 29 í Grindavík.
Bannsvæðið miðast við eftirfarandi hnit:
Bannið gildir frá yfirborði jarðar (SFC) og upp í ótakmarkaða hæð (UNL).
Bannið nær til alls drónaflugs innan afmarkaða svæðisins á gildistímanum, nema sérstök undanþága hafi verið veitt af lögreglu.
Lögreglan mun hafa eftirlit með því að banninu sé fylgt. Brot gegn banninu geta varðað sektum og haldlagningu búnaðar.
Bannið er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar nr. 1360/2024.
Óskir um undanþágu frá drónabanninu skal senda á netfangið [email protected].
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Samgöngustofa (Icelandic Transport Authority).
Read the original at the source: https://island.is/s/samgongustofa/frett/timabundid-dronabann-vid-vesturhop-i-grindavik-27-oktober-2026
Officially imported this from Samgöngustofa (Icelandic Transport Authority)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Samgöngustofa (Icelandic Transport Authority) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=samgongustofa RSS
- Imported
- October 26, 2026 14:30
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/samgongustofa/frett/timabundid-dronabann-vid-vesturhop-i-grindavik-...