Dvalarleyfisfrumvarp dómsmálaráðherra afgreitt úr ríkisstjórn

Imported from official source

Announcement

Ríkisstjórnin afgreiddi í dag frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á dvalarleyfiskafla útlendingalaga. Þetta eru viðamestu breytingar sem gerðar hafa verið á kerfinu í áratug.

Frumvarpinu er fyrst og fremst ætlað að samræma íslenskar reglur við löggjöf á öðrum Norðurlöndum og skapa traustan grunn fyrir skýrt og skilvirkt dvalarleyfiskerfi sem tryggir að ákvarðanir byggi á traustum grunni.

„Við þurfum dvalarleyfiskerfi sem tekur mið af þeim veruleika sem við búum við í dag. Kerfið hefur vaxið hratt á síðustu árum án þess að regluverkið hafi haldið í við þróunina. Nú erum við að setja skýra stefnu, færa reglurnar nær því sem gildir á hinum Norðurlöndunum og gera ríkari kröfur til þeirra sem vilja setjast hér að. Um leið styrkjum við vernd þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.

Ísland veitti á árunum 2020 til 2024 um 37 prósent fleiri dvalarleyfi á hvern íbúa en önnur Norðurlönd. Frá árinu 2017 hefur fjöldi dvalarleyfishafa fimmfaldast. Þrátt fyrir það hafa skilyrði fyrir dvalarleyfi að mestu staðið óbreytt frá árinu 2016.

  • Samræming skilyrða fjölskyldusameiningar og ótímabundins dvalarleyfis við önnur Norðurlönd,
  • Sterkari réttarstaða þolenda mansals og vinnumarkaðsbrota
  • Breytingar á einstökum leyfisflokkum, þar á meðal brottfall dvalarleyfa vegna vistráðningar.
  • Í frumvarpinu eru meðal annars lagðar til breytingar á skilyrðum fjölskyldusameiningar. Lágmarkstími sambúðar verður lengdur úr einu ári í tvö og báðir makar þurfa að hafa náð 24 ára aldri þegar leyfi er veitt líkt og er bæði í Noregi og Danmörku. Aldursskilyrðinu er meðal annars ætlað að sporna við nauðungar-og málamyndahjúskap. Þá verður gerð krafa um að umsækjandi um fjölskyldusameiningu hafi til umráða íbúðarhúsnæði sem rúmi alla fjölskylduna.

    This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Justice (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/dvalarleyfisfrumvarp-domsmalaradherra-afgreitt-ur-rikisstjorn

    Officially imported this from Ministry of Justice (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Justice (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Domsmalaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 27, 2026 14:01
    Versions
    1 recorded
    Identity
    dvalarleyfisfrumvarp-domsmalaradherra-afgreitt-ur-rikisstjorn

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.