Utanríkisráðherra fór fyrir íslenskri sendinefnd á sjávarútvegssýningunni í Qingdao

Imported from official source

Announcement

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti í dag sjávarútvegssýninguna í Qingdao í Kína en hún fór þar fyrir sendinefnd íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja sem stunda viðskipti í Kína. Þorgerður mun síðar í vikunni eiga fund með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, en um þessar mundir eru 55 ár liðin frá því Ísland og Kína tóku upp stjórnmálasamband.

Íslenskur utanríkisráðherra heimsótti Kína síðast árið 2018. Fiskútflutningur frá Íslandi til Kína fer vaxandi og beint flug milli landanna, sem nú er hafið á vegum Air China, opnar frekari tækifæri til útflutnings á ferskum fiski á Kínamarkað. Er megintilgangur heimsóknar utanríkisráðherra til Kína að liðka fyrir viðskiptum milli landanna, jafnframt því að ræða bæði tvíhliða mál og alþjóðamál við kínverska ráðamenn.

„Það er mikilvægt að gæta hagsmuna Íslands á sviði utanríkisviðskipta í hvívetna og hér í Kína eru ýmis tækifæri til staðar, ekki aðeins með tilliti til fiskútflutnings heldur einnig þekkingar Íslendinga á nýtingu jarðvarma og hugvitsamlegra lausna sem íslensk fyrirtæki hafa þróað,“ segir Þorgerður Katrín sem í gær heimsótti kínverska orkufyrirtækið SINOPEC með fulltrúum íslenska orkufyrirtækisins Arctic Green Energy. Fyrirtækið Carbon Recycling International hefur einnig þróað verkefni á Kínamarkaði undanfarin ár og selt þá tækni sem fyrirtækið hefur þróað til að breyta koltvísýringi í metanól.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/utanrikisradherra-for-fyrir-islenskri-sendinefnd-a-sjavarutvegssyningunni-i-qingdao

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
October 28, 2026 12:01
Versions
1 recorded
Identity
utanrikisradherra-for-fyrir-islenskri-sendinefnd-a-sjavarutvegssyningunni-i-qingdao

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.