Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Imported from official source

Announcement

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 2. nóvember.   Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 59 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 4.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 445 kr. fyrir hvern lítra.    Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 300 kr./ltr.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 4.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 59.
  • Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði var 45.
  • Sölutilboð yfir jafnvægisverði var 1.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 563.487 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 2.801.000 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 484.752 lítrar að andvirði 145.425.600,- kr.
  • Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 3 talsins og selja 100% af sínu framboðna magni.
  • Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 13 talsins og fá 69% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
  • Af kauptilboðum er 1 sem fær úthlutun úr forgangspotti nýliða.
  • Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum.   Atvinnuvegaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.

    Úr reglugerð um stuðning í nautgriparækt nr. 348/2022:

    Jafnvægisverð: Það verð sem myndast þegar framboðið magn er jafnt og eftirspurt magn eða lægsta verð sem jafnvægismagn getur verið selt og keypt á.

    Greiðslumarki sem boðið er til sölu á hærra verði en jafnvægisverði skal vísað frá markaði og á sama hátt kauptilboðum sem eru lægri en jafnvægisverð.

    This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Industries (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/45f5e35b-a053-4469-8489-9a5e04dac729

    Officially imported this from Ministry of Industries (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Industries (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Atvinnuvegaraduneytid/rss RSS
    Imported
    November 02, 2026 16:33
    Versions
    1 recorded
    Identity
    45f5e35b-a053-4469-8489-9a5e04dac729

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.