Lykill að samfélaginu: Morgunverðarfundur innflytjendaráðs og afhending styrkja
Imported from official source
Innflytjendaráð stendur fyrir morgunverðarfundi miðvikudaginn 11. nóvember næstkomandi kl. 8:30-11:00. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík og flutt verða margvísleg erindi sem öll tengjast málefnum innflytjenda. Dagskránni lýkur með því að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhendir styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Eftirfarandi erindi verða flutt: New in Iceland – aðgengileg og hagnýt samfélagsfræðsla fyrir innflytjendur; Íslenskuspor – tengsl í gegnum tungumál, og Spjallað um orðræðu kærleikans.
This version
- Version
- 1 of 2
- Recorded
- November 03, 2026 21:30
- Change
- Initial
- Content hash
7b8c914249c526e3e1a678a208162189- All versions
- Revision history