Tilraunaverkefni hafið: Talþjálfun veitt í grunnskólum

Imported from official source

Announcement

Education Classified by Officially

Talmeinafræðingar frá Heyrnar- og talmeinastöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) taka til starfa í fjórum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Þetta er tilraunaverkefni til tveggja ára sem efnt er til að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins og felur í sér nýja nálgun í talmeinaþjónustu.

Löng bið hefur verið eftir þjónustu talmeinafræðinga undanfarin ár. Til að bregðast við þeirri stöðu ákvað heilbrigðisráðuneytið að efna til tilraunaverkefnis þar sem talmeinafræðingar starfa í grunnskólum og veita börnum þar þjónustu í nærumhverfi þeirra. Til að byrja með taka fjórir grunnskólar þátt í verkefninu og verður einn talmeinafræðingur frá Heyrnar- og talmeinastöð HH  staðsettur í hverjum skóla. Til stendur að ráða fleiri talmeinafræðinga til að taka þátt í tilraunaverkefninu og útvíkka verkefnið þannig að það nái til fleiri skóla.

Anna Ósk Sigurðardóttir talmeinafræðingur sem leiðir verkefnið segir áætlað að um tíu til tólf prósent barna á grunnskólaaldri þurfi á þjónustu talmeinafræðinga að halda.

Verkefnið nær til barna með tal- og málmein sem falla undir viðmið Sjúkratrygginga Íslands. Þessi börn eru með alvarleg frávik í málþroska og framburði og hafa mörg hver beðið lengi á biðlistum eftir þjónustu.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Health (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/tilraunaverkefni-hafid-talthjalfun-veitt-i-grunnskolum

Officially imported this from Ministry of Health (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Health (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Heilbrigdisraduneytid/rss RSS
Imported
November 05, 2026 13:31
Versions
1 recorded
Identity
tilraunaverkefni-hafid-talthjalfun-veitt-i-grunnskolum

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.