Stefnt að nýrri aðgerðaáætlun Gott að eldast fyrir 2028-2032
Imported from official source
Félags- og húsnæðismálaráðherra og heilbrigðisráðherra hafa sammælst um að halda áfram innleiðingu aðgerðaáætlunarinnar Gott að eldast og byggja á þeim árangri sem þegar hefur náðst í þróun þjónustu við eldra fólk. Stefnt er að því að móta nýja fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2028-2032 þar sem lögð verður áhersla á áframhaldandi samþættingu þjónustu, aukið samstarf ríkis og sveitarfélaga, nýsköpun og hagkvæma nýtingu fjármuna. Markmiðið er að eldra fólk geti lifað sjálfstæðu og innihaldsríku lífi og búið á eigin heimili eins lengi og kostur er. Þetta kom fram á haustdegi Gott að eldast sem var haldinn í gær þar sem um 100 manns af öllu landinu komu saman til að bera saman bækur sínar og fræðast um öldrunarmál.
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- November 05, 2026 13:31
- Change
- Initial
- Content hash
2dc92755d8399f1b1ea6382e2e6eb0e3- All versions
- Revision history