Ný vitundarvakning hvetur fólk til að undirbúa efri árin
Imported from official source
Landsmenn eru í nýrri vitundarvakningu hvattir til að huga tímanlega að eigin heilsu, félagslegum tengslum og virkni á efri árum. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið stendur fyrir átakinu sem er hluti af verkefninu Gott að eldast. Vitundarvakningunni er ætlað að minna á að undirbúningur fyrir efri árin hefst löngu áður en fólk lætur af störfum. Leikarinn Sigurður Sigurjónsson bregður sér í gervi Gamla Nóa og sýnir á skemmtilegan hátt hvernig hægt er að undirbúa þetta nýja æviskeið. Ingeborg frænka kemur einnig við sögu.
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- November 09, 2026 13:31
- Change
- Initial
- Content hash
7d19fb3a27f2329b62964f5becc9171f- All versions
- Revision history