Opið er fyrir umsóknir í Ask mannvirkjarannsóknarsjóð 2026

Imported from official source

Announcement

Opið er fyrir umsóknir í Ask mannvirkjarannsóknarsjóð 2026. Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember.

Askur mannvirkjarannsóknarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna á sviði húsnæðis- og mannvirkjagerðar. Alls eru 187,5 milljónir króna til úthlutunar. Sjóðurinn er fjármagnaður af  menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og HMS.

Háskólasamfélagið, rannsókna- og nýsköpunargeirinn, opinberir aðilar og atvinnulífið eru hvött til samstarfs um metnaðarfull verkefni sem leiða til hagnýtra lausna, bæta ákvarðanatöku og auka skilvirkni með nýsköpun og tækni. Áhersla er lögð á að niðurstöður séu hagnýtar og skili ávinningi fyrir mannvirkjagerð á Íslandi og samfélagið í heild.

Við úthlutun 2026 verður lögð sérstök áhersla á þrjá flokka innan rannsóknaþarfar í húsnæðis- og mannvirkjagerð:

  • Viðhald og endurbætur - verkefni sem styðja markvissara viðhald, endurbætur og lengri líftíma þegar byggðra mannvirkja.
  • Byggingarvörur, byggingarhlutar og byggingaraðferðir - verkefni um eiginleika byggingarvara, byggingarhluta og tæknilausna miðað við íslenskar aðstæður.
  • Sjálfbærni - verkefni sem draga úr umhverfisáhrifum, styðja hringrásarhagkerfið og bæta orkunýtni.
  • Athygli er vakin á sameiginlegum viðburði Burðar og Rannís um styrkjaumhverfi mannvirkjageirans, sem fer fram 16. nóvember kl. 13:00–15:30 í Borgartúni 21.

    This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-11-09-opid-er-fyrir-umsoknir-i-ask-mannvirkjarannsoknarsjod-2026

    Officially imported this from Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Menningar-nyskopunar-og-haskolaraduneytid/rss RSS
    Imported
    November 09, 2026 16:31
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2026-11-09-opid-er-fyrir-umsoknir-i-ask-mannvirkjarannsoknarsjod-2026

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.