Frumvarp um RÚV afgreitt úr ríkisstjórn

Imported from official source

Announcement

Frumvarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið var samþykkt á fundi ríkisstjórnar á þriðjudaginn síðastliðinn.  Frumvarpið tók breytingum eftir birtingu í samráðsgátt stjórnvalda.

Frumvarpið miðar að því að draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði og er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla. Það tengist jafnframt áformum um að hækka fjárframlög til einkarekinna fjölmiðla. Kjarnabreytingarnar sem frumvarpið felur í sér eru tvíþættar:

  • Dregið verði úr fjárframlagi ríkisins til Ríkisútvarpsins sem nemur tíu prósentum (10%) af auglýsingatekjum Ríkisútvarpsins.  
  • Felldar verða brott kvaðir um lágmarksfjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva sem Ríkisútvarpinu er skylt að dreifa um allt land.  
  • Frumvarpið tók þeim breytingum eftir samráð að  fallið var frá fyrri áformum um „þak“ á auglýsingatekjur RÚV. Samhliða því var ákveðið að flýta gerð nýs þjónustusamnings ráðherra við Ríkisútvarpið. Í nýjum þjónustusamningi verða RÚV lagðar auknar skyldur á herðar, m.a. um samnýtingu tækjabúnaðar og annað samstarf við einkarekna fjölmiðla  í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda fyrir íslenska fjölmiðla. 

    Víðtækt samráð leiddi til breytinga

    Við vinnslu frumvarpsins og aðgerðaáætlunarinnar var haft samráð við fjölmiðla, Ríkisútvarpið, Blaðamannafélag Íslands, fulltrúa auglýsenda, framleiðendur o.fl. Frumvarpsdrög voru birt í samráðsgátt stjórnvalda á tímabilinu 25. september–12. október 2026 og bárust sex umsagnir.

    This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-11-10-frumvarp-um-ruv-afgreitt-ur-rikisstjorn

    Officially imported this from Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Menningar-nyskopunar-og-haskolaraduneytid/rss RSS
    Imported
    November 10, 2026 07:32
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2026-11-10-frumvarp-um-ruv-afgreitt-ur-rikisstjorn

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.