Opinn fundur um stöðu stráka og ungra karla 14. janúar

Imported from official source

Announcement

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra boðar til opins vinnufundar í Ráðhúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 14. janúar. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir opið og einlægt samtal um þær áskoranir sem strákar og ungir karlar standa frammi fyrir.

Fundinum er ætlað að leiða saman fjölbreyttan hóp fólks og draga fram ólík sjónarmið og hugmyndir að því hvernig megi styrkja stöðu stráka og ungra karla. Með því er hægt að hefja samtal sem byggir á reynslu þátttakenda, störfum með börnum og ungmennum og nýjustu rannsóknum og gögnum.

Hópur ungra drengja virðist í auknum mæli eiga erfitt með að fóta sig í skóla, tengjast samfélaginu og finna jákvæðar fyrirmyndir í umhverfi sem mótast sífellt meira af samfélagsmiðlum. Það eru þeir sem flosna upp úr námi, beita og verða fyrir ofbeldi og takast á við mikla vanlíðan um leið og þeir eiga erfitt með að leita sér hjálpar.

Hvernig tryggjum við að þessi hópur upplifi að hann hafi mikilvægu hlutverki að gegna í samfélaginu og að rödd hans skipti máli? Hvernig náum við sem samfélag til stráka og gerum þá að virkum þátttakendum í samtali um jafnrétti og samfélagslega ábyrgð?

Í febrúar skipaði dómsmálaráðherra nefnd til að fá yfirsýn yfir málefni stráka og ungra karla. Hlutverk nefndarinnar er að vinna skýrslu um samfélagslega stöðu þeirra í tengslum við aðgerð í framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026-2029.

Niðurstöður fundarins í Ráðhúsinu verða nýttar við mótun aðgerða til að efla stöðu stráka og ungra karla og auka þátttöku þeirra í umræðu og starfi á sviði jafnréttismála.

Dómsmálaráðherra skorar á þau sem áhuga hafa á jafnréttismálum og málefnum stráka og ungra karla að mæta.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Justice (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-11-10-opinn-fundur-um-stodu-straka-og-ungra-karla-14-januar

Officially imported this from Ministry of Justice (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Justice (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Domsmalaraduneytid/rss RSS
Imported
November 10, 2026 15:33
Versions
1 recorded
Identity
2026-11-10-opinn-fundur-um-stodu-straka-og-ungra-karla-14-januar

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.