Fyrirkomulag húsnæðisstuðnings við leigjendur endurskoðað
Imported from official source
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp um endurskoðun á fyrirkomulagi húsnæðisstuðnings við leigjendur. Markmið endurskoðunarinnar er að gera húsnæðisstuðning við leigjendur markvissari og tryggja að hann nýtist betur tekju- og eignaminni hópum á leigumarkaði. Hlutverk starfshópsins er að vinna tillögur til ráðherra um breytt fyrirkomulag húsnæðisstuðnings við leigjendur á grundvelli laga um húsnæðisbætur. Hópurinn mun meðal annars líta til fyrirkomulags húsnæðisstuðnings á Norðurlöndum og ábendinga alþjóðastofnana til íslenskra stjórnvalda um húsnæðisbætur. Einnig verður horft til samspils húsnæðisbóta við annan húsnæðisstuðning við leigjendur.
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- November 10, 2026 16:31
- Change
- Initial
- Content hash
a69bf2e0b983ce4ae92a1707fdbb2547- All versions
- Revision history