Stefnt að nýrri aðgerðaáætlun Gott að eldast fyrir 2028-2032

Imported from official source

Félags- og húsnæðismálaráðherra og heilbrigðisráðherra hafa sammælst um að halda áfram innleiðingu aðgerðaáætlunarinnar Gott að eldast og byggja á þeim árangri sem þegar hefur náðst í þróun þjónustu við eldra fólk. Stefnt er að því að móta nýja fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2028-2032 þar sem lögð verður áhersla á áframhaldandi samþættingu þjónustu, aukið samstarf ríkis og sveitarfélaga, nýsköpun og hagkvæma nýtingu fjármuna. Markmiðið er að eldra fólk geti lifað sjálfstæðu og innihaldsríku lífi og búið á eigin heimili eins lengi og kostur er. Þetta kom fram á haustdegi Gott að eldast sem var haldinn í gær þar sem um 100 manns af öllu landinu komu saman til að bera saman bækur sínar og fræðast um öldrunarmál.  

This version

Version
1 of 1
Recorded
November 11, 2026 10:30
Change
Initial
Content hash
26495fe98bc7b4530d9066d86a12b1c4
All versions
Revision history

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.