Skipar starfshóp um leigutryggingar og eftirlit á leigumarkaði
Imported from official source
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp um leigutryggingar og eftirlit á leigumarkaði. Breyttu fyrirkomulagi leigutrygginga er meðal annars ætlað að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi á leigumarkaði, einfalda og skýra kröfuferla þegar leigusali gerir kröfu í tryggingarfé, auka fyrirsjáanleika um endurgreiðslu tryggingarfjár og fækka ágreiningsmálum fyrir kærunefnd húsamála. Hlutverk starfshópsins er að gera tillögu að breyttu fyrirkomulagi leigutrygginga ásamt nýju eftirlitshlutverki Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) á leigumarkaði, svo sem við vottun kröfuferla. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum til ráðherra í formi frumvarps til laga um breytingu á húsaleigulögum snemma á næsta ári.
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- November 11, 2026 10:30
- Change
- Initial
- Content hash
6f9b39190206bd321b385e23d8367c3f- All versions
- Revision history