Íslenskar stofnanir hvattar til þátttöku í heilbrigðissamstarfi ESB
Heilbrigðisráðuneytið kallar eftir óskum Ãslenskra stofnana um tilnefningu til þátttöku à samvinnuverkefnum EU4Health, heilbrigðisáætlunar Evrópusambandsins (ESB). Frestur til að skila óskum til ráðuneytisins er 10. desember 2026. Formleg tilnefning ráðuneytisins er skilyrði fyrir þátttöku à þessum verkefnum.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur samþykkt vinnuáætlun EU4Health fyrir árið 2026. Heildarfjármagn hennar nemur um 93 milljörðum Ãslenskra króna (um 680 milljónum evra) og verður úthlutað með beinum styrkjum, opnum samkeppnisstyrkjum og útboðum. Ãætlunin felur à sér tækifæri fyrir Ãslenskar stofnanir og aðra gjaldgenga aðila til að fjármagna hluta af þátttöku à fyrir fram skilgreindum heilbrigðisverkefnum, efla fagþekkingu og taka þátt à evrópsku heilbrigðissamstarfi.
Samvinnuverkefni, svonefnd Joint Actions, eru mikilvægur hluti vinnuáætlunarinnar. Til þeirra eru veittir beinir styrkir án almenns samkeppnisútkalls. Styrkirnir eru ætlaðir stjórnvöldum og stofnunum sem bera ábyrgð á heilbrigðismálum à þátttökurÃkjunum.
Opnað hefur verið fyrir formlegt tilnefningarferli vegna þessara verkefna. Ãslenskar stofnanir sem óska eftir þátttöku þurfa að skila ósk um tilnefningu til heilbrigðisráðuneytisins, póstfang: [email protected], eigi sÃðar en 10. desember 2026.
Opnir samkeppnisstyrkir krefjast ekki tilnefningar
Auk samvinnuverkefnanna býður EU4Health upp á opna samkeppnisstyrki, svonefnd Open Calls. Allir gjaldgengir aðilar geta sótt um þá og ekki er krafist formlegrar tilnefningar ráðuneytisins.
Framkvæmdastofnun ESB á sviði heilbrigðis- og stafrænna málefna, (e. European Health and Digital Executive Agency (HaDEA)), annast stærstan hluta úthlutana áætlunarinnar og heldur utan um umsóknarferli og útboð. Upplýsingar um opin útköll, umsóknarskilyrði og fresti eru birt á vef stofnunarinnar.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Ministry of Health (Iceland).
Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-11-11-islenskar-stofnanir-hvattar-til-thatttoku-i-heilbrigdissamstarfi-esb
Officially imported this from Ministry of Health (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Ministry of Health (Iceland) — imported from official source
- Official source
- https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Heilbrigdisraduneytid/rss RSS
- Imported
- November 11, 2026 10:32
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
2026-11-11-islenskar-stofnanir-hvattar-til-thatttoku-i-heilbrigdissamstarfi-esb