Bólusetningar hefjast í apótekum

Imported from official source

Announcement

Nýr samningur Sjúkratrygginga við apótek um lyfjafræðilega þjónustu markar tímamót í aðgengi almennings að heilbrigðisþjónustu. Nú verður hægt að fá bólusetningu við inflúensu í apótekum, til viðbótar við þá þjónustu sem veitt er á heilsugæslustöðvum. Alma Möller heilbrigðisráðherra og Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga, voru meðal þeirra fyrstu sem nýttu sér þjónustuna og fengu fáinflúensubólusetningu í ÍslandsApóteki.

Með nýju fyrirkomulagi verður fólki auðveldað að nálgast bólusetningar í sínu nærumhverfi. Markmiðið er að bæta aðgengi að þjónustu, fjölga þeim stöðum þar sem hægt er að fá bólusetningu og draga um leið úr álagi á heilsugæsluna.

Þetta er jafnframt fyrsta verkefnið sem kemur til framkvæmda á grundvelli Hvítbókar um aukna lyfjafræðilega þjónustu í apótekum. Með því er stigið skref í átt að auknu hlutverki apóteka í grunnþjónustu heilbrigðiskerfisins.

„Þetta er ánægjulegt skref í átt að aðgengilegri heilbrigðisþjónustu. Með því að bjóða bólusetningar í apótekum fær fólk fleiri valkosti og getur sótt þjónustuna nær heimili sínu eða vinnustað. Um leið erum við að nýta betur krafta heilbrigðiskerfisins. Þegar einföld og afmörkuð verkefni eru leyst í apótekum getur það dregið úr álagi á heilsugæsluna og skapað þar meira svigrúm til að sinna þeim sem þurfa á fjölþættari þjónustu að halda.“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra.

Markvissari nýting heilbrigðisþjónustu

Samningur Sjúkratrygginga við apótek um lyfjafræðilega þjónustu hefur það að markmiði að nýta betur þekkingu og aðstöðu apóteka til að sinna afmörkuðum heilbrigðisverkefnum. Þannig geta einstaklingar fengið einfalda þjónustu í apótekum í stað þess að þurfa í öllum tilvikum að leita til heilsugæslunnar.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Health (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-11-02-bolusetningar-hefjast-i-apotekum

Officially imported this from Ministry of Health (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Health (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Heilbrigdisraduneytid/rss RSS
Imported
November 11, 2026 10:32
Versions
1 recorded
Identity
2026-11-02-bolusetningar-hefjast-i-apotekum

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.