26 verkefni hljóta styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála

Imported from official source

Announcement

Styrkir úr Þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2026 voru veittir á viðburðinum Lykill að samfélaginu sem innflytjendaráð stóð fyrir nú í morgun. Alls hlutu 26 verkefni styrk.

Það voru Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem afhentu styrkina. Ragnar Þór benti í ávarpi sínu á að verkefnin væru vítt og breitt um landið og tækju á ólíkum þáttum í takt við áherslurnar í ár.

„Með því að virkja mannauðinn sem til er í landinu byggjum við til framtíðar, til þess er Þróunarsjóður innflytjendamála og það gerir það fólk sem fær hér styrk í dag,“ sagði ráðherra.

Auglýst var eftir umsóknum um styrkina í sumar og var áhersla lögð á verkefni sem stuðla að virkri notkun íslensku í daglegu lífi, verkefni sem styðja ungt fólk sem er nýkomið til landsins og foreldra framhaldsskólanema af erlendum uppruna og verkefni sem vinna gegn fordómum, hatursorðræðu og rangfærslum í stafrænu umhverfi.

„Verkefnin sem við fögnum í dag hjálpa okkur að sjá hvert annað skýrar. Þau leiða fólk saman og skapa tækifæri til að læra og taka þátt. Þau sýna að við getum eflt íslenskuna og um leið virt þau tungumál og þá reynslu sem fólk hefur með sér,“ sagði Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs, á viðburðinum í morgun.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-11-11-26-verkefni-hljota-styrk-ur-throunarsjodi-innflytjendamala

Officially imported this from Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Felags-og-husnaedismalaraduneytid/rss RSS
Imported
November 11, 2026 13:30
Versions
1 recorded
Identity
2026-11-11-26-verkefni-hljota-styrk-ur-throunarsjodi-innflytjendamala

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.