26 verkefni hljóta styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála

Imported from official source

Styrkir úr Þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2026 voru veittir á viðburðinum Lykill að samfélaginu sem innflytjendaráð stóð fyrir nú í morgun. Alls hlutu 26 verkefni styrk. Það voru Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem afhentu styrkina. Ragnar Þór benti í ávarpi sínu á að verkefnin væru vítt og breitt um landið og tækju á ólíkum þáttum í takt við áherslurnar í ár. „Með því að virkja mannauðinn sem til er í landinu byggjum við til framtíðar, til þess er Þróunarsjóður innflytjendamála og það gerir það fólk sem fær hér styrk í dag,“ sagði ráðherra.

This version

Version
1 of 1
Recorded
November 11, 2026 13:30
Change
Initial
Content hash
25a5795890e976b6f706f43cdab83bf0
All versions
Revision history

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.