Frumvarp um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða birt í samráðsgátt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur birt à samráðsgátt stjórnvalda drög að umfangsmiklu frumvarpi sem miðar að þvà að flýta uppbyggingu raforkuinnviða, hraða úrlausn ágreiningsmála og auka skilvirkni à leyfisveitingum. Veigamestu ákvæðin lúta að eignarnámi og aðgangi að landi, umhverfismati framkvæmda, tengikostnaði nýrra virkjana, aflviðmiði rammaáætlunar og eftirfylgni með fjárfestingum à flutningskerfi raforku.
Flýtimeðferð og skilvirkara eignarnámsferli
Með frumvarpinu eru settar skýrari reglur um samningaviðræður, upplýsingagjöf og afgreiðslu eignarnámsbeiðna. Lagt er til að lögfestur verði sex mánaða málshöfðunarfrestur vegna ákvörðunar ráðherra um eignarnám og að mælt verði fyrir um flýtimeðferð slÃkra mála fyrir dómstólum. Markmiðið er að ágreiningur verði að jafnaði leiddur til lykta á innan við tólf mánuðum svo að framkvæmdir tefjist ekki um mörg ár vegna dómsmála eins og dæmi eru um.
Jafnframt er lagt til að ráðherra verði heimilt að leyfa umráðatöku og framkvæmdir áður en endanleg niðurstaða liggur fyrir um fjárhæð eignarnámsbóta þegar ekki er ágreiningur um lögmæti eignarnámsins sjálfs. Sama heimild geti einnig átt við þegar framkvæmd er nauðsynleg vegna ástands sem ógnar almannahag, raforkuöryggi eða öðrum brýnum hagsmunum. Réttur landeigenda til fullra bóta helst óskertur sem og heimild til þess að krefjast tryggingar fyrir væntanlegum bótum.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).
Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-11-12-frumvarp-um-flytingu-uppbyggingar-raforkuinnvida-birt-i-samradsgatt
Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
- Official source
- https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
- Imported
- November 12, 2026 13:31
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
2026-11-12-frumvarp-um-flytingu-uppbyggingar-raforkuinnvida-birt-i-samradsgatt