Fyrsta skóflustunga að nýrri Þjóðarhöll

Imported from official source

Announcement

Education Classified by Officially

Fyrsta skóflustunga að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal var tekin í dag, fimmtudaginn 12. nóvember 2026. Þar með eru framkvæmdir formlega hafnar við nýjan heimavöll íslenskra landsliða í innanhússíþróttum, mannvirki sem stenst alþjóðlegar kröfur um keppnisaðstöðu. Ný Þjóðarhöll markar tímamót í uppbyggingu Laugardals og gjörbyltir aðstöðu barna og ungmenna í Laugardal til æfinga, keppni og skólastarfs.

Athöfnin hófst kl. 13:00 í Laugardalshöll að viðstöddum fjölda gesta. Ávörp fluttu Thomas Möller, formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf.; Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra; Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur; Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra; Sveinbjörn Jónsson, verkefnastjóri hjá Íslenskum aðalverktökum; og Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Að ávörpum loknum var gengið út á lóð Þjóðarhallar, þar sem ungt afreksíþróttafólk úr landsliðum og félögum í Laugardal tók fyrstu skóflustunguna.

  • Helga Jenný Vigfúsdóttir – Handknattleikssamband Íslands
  • Hulda María Agnarsdóttir – Körfuknattleikssamband Íslands
  • Fjölnir Logi Halldórsson – Blaksamband Íslands
  • Þorsteinn Orri Ólafsson – Fimleikasamband Íslands
  • Hjalti Björnsson – Glímufélagið Ármann
  • Saga Björgvinsdóttir – Knattspyrnufélagið Þróttur
  • „Með skóflustungunni hefst nýr kafli í íslenskri íþróttasögu. Ný Þjóðarhöll verður heimavöllur landsliðanna okkar og vettvangur stórra stunda, og hún bætir jafnframt aðstöðu barna og ungmenna í Laugardal. Það er við hæfi að ungt afreksíþróttafólk taki fyrstu skóflustunguna, því það er fyrir það og komandi kynslóðir sem við byggjum þetta hús,“ segir Thomas Möller, formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf.

    This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-11-12-fyrsta-skoflustunga-ad-nyrri-thjodarholl

    Officially imported this from Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Fjarmala-og-efnahagsraduneytid/rss RSS
    Imported
    November 12, 2026 17:01
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2026-11-12-fyrsta-skoflustunga-ad-nyrri-thjodarholl

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.