Rætt um styrkingu norræns varnarsamstarfs

Imported from official source

Announcement

Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna funduðu um eflingu norræns varnarsamstarfs undir merkjum NORDEFCO í Osló í dag og í gær.  Málefni Atlantshafsbandalagsins, vaxandi framlög til varnarmála og aukin fælingar- og varnargeta bandalagsins, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu, sem og ákvörðun um vinnu við samning um varnarsamvinnu Norðurlandanna, voru meðal þess sem rætt var á fundinum. Yfirmenn herafla Norðurlandanna tóku þátt í hluta fundarins ásamt Nick Perry hershöfðingja, sem er nýr yfirmaður aðgerðarstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk í Bandaríkjunum.

Í sameiginlegri yfirlýsingu ríkjanna kemur fram að nýr kafli í norræna varnarsamstarfinu sé að hefjast, með aukinni ábyrgð Evrópu á vörnum álfunnar. Norðurlöndin eru þar ekki undanskilin og taka sinn skerf af byrðaskiptingunni innan Atlantshafsbandalagsins, og því var ákveðið á fundinum að hefja vinnu við gerð norræns varnarsamstarfssamnings. Slíkur samningur kemur til með að skerpa á lagalegri umgjörð norrænnar varnarsamvinnu og renna þannig styrkari stoðum undir vaxandi samstarf milli norrænu ríkjanna og eflir framlag þeirra til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins.

Þá var einnig haldinn sameiginlegur fundur NORDEFCO og Haga-samstarfsins svokallaða, sem er samstarf Norðurlandanna er lýtur að almannavörnum. Þar var lögð sérstök áhersla á viðnámsþrótt samfélaga, en Norðurlöndin leggja vaxandi áherslu á að efla samstarf og samskipti sín á milli á sviði almannavarna og áfallaþols.

Samhliða NORDEFCO-fundinum fór fram Atlantic Future Forum-ráðstefnan á vegum breskra stjórnvalda, um helstu áskoranir í öryggis- og varnarmálum. Þar hittust einnig yfirmenn flota Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) og staðfestu aukið samstarf um varnar og öryggismál á hafi.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-11-12-2026-11-12

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
November 12, 2026 17:01
Versions
1 recorded
Identity
2026-11-12-2026-11-12

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.