Einfaldara regluverk og styttri ferlar við húsnæðisuppbyggingu

Imported from official source

Unnið er að einföldun regluverks og stjórnsýslu í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu til að draga úr reglubyrði og gera ferla fljótlegri og skilvirkari. Meðal verkefna eru breytingar á skipulagslögum, byggingarreglugerð og lögum um mannvirki sem eiga að greiða fyrir húsnæðisuppbyggingu án þess að slaka á kröfum um gæði og öryggi.   Ráðherra og ríkisstjórnin í heild hafa lagt áherslu á einföldun regluverks, meðal annars í atvinnustefnu Íslands til ársins 2035 og aðgerðaáætlun hennar fyrir árin 2026-2027. Breytingunum á sviði mannvirkja- og skipulagsmála er ætlað að greiða fyrir uppbyggingu með skilvirkari stjórnsýslu, skýrari ábyrgð og aukinni nýtingu stafrænna lausna. 

This version

Version
1 of 1
Recorded
November 13, 2026 08:30
Change
Initial
Content hash
5320df4adec2c433fb27d23d4964832b
All versions
Revision history

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.