Tökum höndum saman gegn einelti á vinnustöðum
Einelti má aldrei líðast á vinnustöðum. Skilaboðin eiga að vera skýr og það eru til þekktar leiðir sem vinnustaðir geta tileinkað sér til að fyrirbyggja að einelti fái viðgengist í samskiptum fólks.
Öll á vinnustað þurfa að axla ábyrgð á samskiptum innan hans og stjórnendur þurfa að ganga á undan með góðu fordæmi. Í því felst einnig að gefa skýr skilaboð um hvernig menningu samstarfsfólk vill hafa á vinnustaðnum og virkja öll til að koma á slíkri menningu. Þá er mikilvægt að huga að hvernig menningin birtist í samskiptum, hegðun og viðhorfum starfsfólks.
Þegar rætt er um einelti beinist athyglin gjarnan að hegðun einstaklinga og því hvernig bregðast eigi við þegar mál koma upp. Skjót og markviss viðbrögð skipta miklu máli þegar einelti kemur upp en mikilvægara er að þekkja þær aðstæður sem geta skapað jarðveg fyrir vandann til að fyrirbyggja einelti. Þá skiptir máli að horfa til sálfélagslega vinnuumhverfisins. Þá er átt við skipulag, stjórnun og samskipti á vinnustaðnum. Þegar hlutverk og ábyrgð eru skýr, starfsfólk fær nauðsynlegan stuðning og endurgjöf og skýr viðmið gilda um samskipti er lagður grunnur að heilbrigðu vinnuumhverfi sem getur dregið úr líkum á erfiðum samskiptum.
Þegar skipulag, stjórnun og samskipti eru ekki í góðu lagi geta hins vegar skapast aðstæður sem ýta undir misskilning, óskýra verkaskiptingu, skort á forgangsröðun verkefna, togstreitu. Ef ekki er tekið á slíkum aðstæðum með styrkri stjórnun getur það orðið frjósamur akur fyrir neikvæð samskipti og viðhorf sem í sumum tilvikum geta stigmagnast í einelti. Það er því ekki nægjanlegt að vera viðbúinn að bregðast við komi upp einelti heldur þarf að grípa til aðgerða með virkri stjórnun, góðu skipulagi og jákvæðum samskiptum og þar með bæta þær aðstæður í vinnuumhverfinu sem geta aukið hættuna á því að slíkur vandi þróist.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health).
Read the original at the source: https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/toekum-hoendum-saman-gegn-einelti-a-vinnustoedum
Officially imported this from Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=vinnueftirlitid RSS
- Imported
- November 13, 2026 10:31
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/toekum-hoendum-saman-gegn-einelti-a-vinnustoedum