Dagur íslenskrar tungu: Verðlaunaafhending í Eddu og ákall til Apple

Imported from official source

Announcement

Dagur íslenskrar tungu verður haldinn hátíðlegur mánudaginn næstkomandi í Eddu kl. 15:00, þegar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra veitir verðlaun Jónasar Hallgrímssonar í 31. skipti. Við sama tilefni er veitt sérstök viðurkenning íslenskrar tungu. Viðurkenninguna skal veita hópi, félagi, verkefni, samtökum, fyrirtækjum eða stofnunum sem hafa sýnt íslenskri tungu ræktarsemi, vakið athygli á henni eða sýnt henni stuðning í verki.

Meðal fyrri verðlaunahafa eru Dröfn Vilhjálmsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur sem hlaut verðlaunin á síðasta ári, Ari Eldjárn uppistandari og frú Vigdís Finnbogadóttir.

Markmið dags íslenskrar tungu er að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð. Það er því viðeigandi að við tilefnið verður einnig hrint af stað ákalli til tæknirisans Apple þar sem ráðherra óskar eftir stuðningi landsmanna við að þrýsta á Apple til að innleiða íslensku í stýrikerfi sitt. Framtíð íslenskrar tungu krefst þess að hún verði aðgengileg í nýjustu tækni og framtíð þeirra sem eiga við aðgengi hindranir að stríða er samofin því að sú tækni sé aðgengileg á móðurmálinu.   

Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert. Víða er efnt til margvíslegra menningarviðburða í tilefni dagsins.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-11-13-dagur-islenskrar-tungu-verdlaunaafhending-i-eddu-og-akall-til-apple

Officially imported this from Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Menningar-nyskopunar-og-haskolaraduneytid/rss RSS
Imported
November 13, 2026 13:32
Versions
1 recorded
Identity
2026-11-13-dagur-islenskrar-tungu-verdlaunaafhending-i-eddu-og-akall-til-apple

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.