Ekki ástæða fyrir heimili á Íslandi að eiga joðtöflur vegna ástandsins í Úkraínu
Í nýlegri sameiginlegri yfirlýsingu evrópskra og norrænna geislavarna- og kjarnorkueftirlitsstofnana eru lýst áhyggjum af aukinni hættu á kjarnorkuslysum vegna árása Rússlands á orkuinnviði Úkraínu.
Þrátt fyrir þetta er afar ólíklegt að hugsanlegt kjarnorkuslys í Úkraínu hefði áhrif hér á landi sem kölluðu á sérstakar aðgerðir. Ekki er því ástæða fyrir almenning á Íslandi að kaupa eða taka joðtöflur vegna ástandsins.
Að yfirlýsingunni standa samtök kjarnorkueftirlitsstofnana í Vestur-Evrópu (WENRA), samtök yfirmanna evrópskra geislavarnastofnana (HERCA) og yfirmenn norrænna geislavarna- og kjarnöryggisstjórnvalda (NORA).
Nánar má lesa um yfirlýsinguna í frétt Geislavarna ríkisins
Áhrif hugsanlegs kjarnorkuslyss á Íslandi
Að mati Geislavarna ríkisins er afar ólíklegt að geislavirk efni frá hugsanlegu kjarnorkuslysi í Úkraínu berist til Íslands í því magni að þörf verði á sérstökum aðgerðum, svo sem inntöku joðtaflna, skýlingu eða brottflutningi fólks.
Vegna mikillar fjarlægðar Íslands frá Úkraínu myndu geislavirk efni dreifast og þynnast verulega áður en þau gætu borist hingað til lands. Auk þess hefur geislavirkt joð (joð-131) tiltölulega stuttan helmingunartíma, um átta daga, og dregur því úr geislavirkni þess með tímanum.
Geislavarnir ríkisins hafa fylgst náið með þróun mála í Úkraínu frá upphafi stríðsins og munu halda því áfram í samstarfi við erlenda aðila. Stofnunin gerir jafnframt reglulega spár um hugsanlega dreifingu geislavirkra efna frá kjarnorkuslysi í Úkraínu og upplýsir innlenda samstarfsaðila eftir því sem við á.
Joðtöflur aðeins teknar samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda
Við alvarlegt kjarnorkuslys getur geislavirkt joð losnað út í umhverfið. Ef það berst inn í líkamann getur það safnast fyrir í skjaldkirtli og aukið hættu á skjaldkirtilskrabbameini, einkum hjá börnum og ungu fólki.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Embætti landlæknis (Directorate of Health).
Read the original at the source: https://island.is/s/landlaeknir/frett/ekki-astaeda-fyrir-heimili-a-islandi-ad-eiga-jodtoeflur-vegna-astandsins-i-ukrainu
Officially imported this from Embætti landlæknis (Directorate of Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Embætti landlæknis (Directorate of Health) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=landlaeknir RSS
- Imported
- November 16, 2026 13:32
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/landlaeknir/frett/ekki-astaeda-fyrir-heimili-a-islandi-ad-eiga-jodt...