Sýklalyfjaónæmi – mikilvægt að efla forvarnir og varðveita virkni sýklalyfja
Sýklalyfjaónæmi er vaxandi ógn við lýðheilsu um allan heim. Staðan á Íslandi er enn almennt góð í evrópskum samanburði, en nýjustu niðurstöður sýna að ákveðnar gerðir ónæmis eru að aukast.
Skynsamleg notkun sýklalyfja, öflugar sýkingavarnir og bólusetningar eru meðal mikilvægustu aðgerða til að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.
Árlegur Evrópudagur vitundarvakningar um sýklalyf, á vegum Sóttvarnastofnunar Evrópu (ECDC), er haldinn 18. nóvember. Sama dag hefst alþjóðleg vitundarvika um sýklalyfjaónæmi á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), sem stendur dagana 18.–24. nóvember.
Markmið vitundarvakningarinnar er að auka þekkingu almennings, heilbrigðisstarfsfólks, stjórnvalda og annarra á sýklalyfjaónæmi og mikilvægi aðgerða til að hindra útbreiðslu þess.
Áhersla ECDC árið 2026 er á skynsamlega notkun sýklalyfja hjá börnum og mikilvægi þess að foreldrar og forráðamenn þekki hvenær sýklalyfjameðferð er nauðsynleg. Mörg algeng veikindi barna eru af völdum veira og sýklalyf gagnast ekki gegn þeim.
Yfirskrift vitundarviku WHO í ár er Ein heilsa, eitt verkefni – komum í veg fyrir sýklalyfjaónæmi núna, þar sem lögð er áhersla á sameiginlega ábyrgð á heilbrigði manna, dýra og umhverfis.
Samkvæmt nýútkominni ársskýrslu sóttvarnalæknis um sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería hjá mönnum og dýrum á Íslandi árið 2025 dróst heildarsala sýklalyfja hjá fólki saman um 4,6% frá fyrra ári. Þrátt fyrir það er sýklalyfjanotkun enn meiri hér á landi en á öðrum Norðurlöndum.
Sýklalyfjaónæmi er ennþá minna vandamál á Íslandi en í flestum öðrum Evrópuríkjum. Þróun ákveðinna gerða ónæmis vekur þó áhyggjur. Meðal annars hefur ónæmi Escherichia coli (E. coli) fyrir mikilvægum sýklalyfjum aukist á undanförnum árum. Einnig fjölgar einstaklingum sem greinast með karbapenemasa-myndandi bakteríur (CPE), sem geta verið ónæmar fyrir nær öllum tiltækum sýklalyfjum.
Sýklalyfjaónæmi er alþjóðleg heilbrigðisógn
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Embætti landlæknis (Directorate of Health).
Read the original at the source: https://island.is/s/landlaeknir/frett/syklalyfjaonaemi-mikilvaegt-ad-efla-forvarnir-og-vardveita-virkni-syklalyfja
Officially imported this from Embætti landlæknis (Directorate of Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Embætti landlæknis (Directorate of Health) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=landlaeknir RSS
- Imported
- November 18, 2026 09:32
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/landlaeknir/frett/syklalyfjaonaemi-mikilvaegt-ad-efla-forvarnir-og-...